Miðvikudagur, 23. september 2009
Ráðherra, dómari og fangavörður
Valdasvið ráðherra íslensku ríkistjórnarinnar er um margt farið að minna á gömlu fógetana, en þeir lentu sem frægt er orðið fyrir mannréttindanefnd fyrir það að fara til skiptis með framkvæmda- og dómsvald.
Íslenska ríkisstjórnin, framkvæmdavaldið, er búið að dæma þjóðina forspurða í 15 ára skuldaþrældóm og skattpíningu án þess að þar komi nokkurstaðar að viðurkennt dómsvald eða þriðji aðili sem kallast gæti hlutlaus eða faglegur. Hægt væri raunar að komast framhjá slíku ef þjóðin lýsti sig seka, en henni hefur ekki verið boðið að tjá sig um málið í þjóðaratkvæðagreiðslu - enda virðast orðstír og lífsgæði landsmanna ekki koma þjóðinni nægilega mikið við að mati stjórnvalda.
En, fyrst að Íslendingar eiga að búa í einu allsherjar skuldafangelsi er spurning hvort við ættum ekki að fara alla leið og endurskíra landið "Stóra Hraun" -- bara rétt á meðan á afplánun íslensku þjóðarinnar stendur?
Við gætum líka lokað "Litla Hrauni" á til 2024 og sparað með því umtalsverðar fjárhæðir, enda ekkert vit í því fyrir stjórnvöld að læsa suma afbrotamenn inni í fullu fæði og húsnæði á meðan aðrir íslenskir sakamenn (svokallaðir skattgreiðendur) sem eru einnig að afplána fyrir afbrot (Icesave) fá að búa heima hjá sér.
Sjá annars nánar grein mína um Icesave málið hér að neðan.
|
Margt hangir á Icesave |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.9.2009 kl. 00:18 | Facebook


Athugasemdir
Sæl Vala.
Þú hittir naglann á höfuðið í einstaklega beittri og miskunarlausri umfjöllun þinni um ósvífni íslensku ríkisstjórnarinnar, sem sýnir einbeittan brottavilja við að koma skuldasúpu Landsbankans yfir þjóðina til þess greinilega að kaupa sér aðgang að ESB.
Að mínu viti er ekkert samband milli þess að skoða aðild að ESB og borga Icesave fyrir Björgúlf junior og senior.
Ríkarður Ríkarðsson 23.9.2009 kl. 07:53
Íslensk þjóð ber ekki ábyrgð á skuldum óreiðumanna í útlöndum að lögum og reglum EES og ESB, né heldur að hérlendum lögum. Ábyrgðarsjóður innistæðueiganda á Íslandi ber ábyrgð á innistæðum allt að 20.887 að mig minnir. Eigi sjóðurinn ekki fyrir upphæðinni er honum heimil lántaka vilji einhver lána honum. Það er sérstaklega tekið fram að ekki sé ríkisábyrgð á honum og er þetta lagabókstafur sem viðþýddum og tókum upp að kröfu ESB vegna EES aðildar Íslands. Það verður vart á nokkurn lögmann hallað þó að sagt sé að Stefán Már prófessor sé lögmanna fróðastur í lögum og rétti er varða ESB og EES, en hann ásamt Lárusi Blöndal hrl. hafa í greinum sínum fært lögfræðileg rök fyrir þessu.
Davíð Oddsson, þá seðlabankastjóri, sagði sama í frægu Kastljóssviðtali í haust og ítrekað síðan. Hann bendir á eins og flestir lögmenn, að þeir sem telji að Ísland sem þjóð skuldi þessar töpuðu Icesave inniástæður, er frjálst að sækja slíkt mál á hendur okkur í gegn um dómstóla. Aðspurður taldi D.O. að varnarþing þjóðarinnar væri líklegast Héraðsdómur Reykjavíkur. Þangað geti menn snúið sér með kröfur sínar.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 23.9.2009 kl. 14:43
innistæður átti nú að standa þarna en ekki inniástæður
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 23.9.2009 kl. 14:45
Þakka þér fyrir frábæra færslu.
Frosti Sigurjónsson, 24.9.2009 kl. 00:03
Kærar þakkir fyrir innlitin og málefnalegar athugasemdir. Ég hvet alla til að lesa greinina á undan þessari þar sem ég fer nánar ofan í saumana á þessum málum.
Vala Andrésdóttir Withrow, 24.9.2009 kl. 00:13
Þetta er virkilega góð færsla. Köld og sönn. Lýsir veruleikanum sem okkur er ætlaður án nokkurra málalenginga. Takk fyrir mig.
Rakel Sigurgeirsdóttir, 24.9.2009 kl. 00:44
Þökk fyrir að benda á færsluna þína næst á undan. Ég las hana og get tekið undir megnið af því sem þú kemur inn á þar. Góður pistill það.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 24.9.2009 kl. 01:45
Greinin ber þér vitni Vala að þú hefur laga andann á hreinu. Stóri þáttur Íslensku Stóra Hraunsstefnunni er ekki bara sauðheimsk Stjórnsýsla heldur og hnignandi lögfræðingastétt þar sem magnið en ekki gæðin sitja í fyrirrúmi.
Andi laganna svarar ensku spurningunni: Question of fact. Þetta hugtak var mikið í umræðu í mínum uppvexti hér á landi en fer lítið fyrir því síðustu árin.
Með lögum skal land byggja og með ólögum eyða. Skuldfesti fylgir frá Rómarrétti og lifir góðu lífi enn í dag. Ekki væsir um Dómara stéttina á Stórahrauni sem þiggur þóknun óbeint með forréttindakjaradómi.
Einkavinabankar hafa alltaf notið alhliða verðtryggingar samanber samfelldan vöxt eiginfjár frá því í síðustu heimstyrjöld. Þannig að ekki skorti verðtryggingu fyrir upptöku einokunar neysluverðsvístölu um 1982 til leiðréttingar á veðhæfum eignarhluta lánadrottins í heimilafasteign skuldamanns.
Hagfræðingar margir segja það ókost hvað margir búa í eiginhúsnæði hér miðað við EU? Miða þeir þá við eignarhluta lögskráðs ábyrgðar manns neysluveðskuldarinnar þar sem fasteignin heimilið er aukaatriði?
Hvað varðar endurreisn fjármálageirans þá mun hann ekki fitna hér innlánsvöxtum í framtíðinni og verða ekki margir hér lánshæfir með tilliti til veðtryggingar í augum alþjóðafjárfesta þar sem verðlag stefnir eftir eignaupptöku á það í Lettlandi og eða varnalegan fast lágengi og hverfandi verðtryggingar verðbólgu ávöxtunarkröfunnar sem lánað hefur verið út á hingað til.
Á heilbrigðum samkeppni markaði eru gjaldþrot nauðsynleg til að halda upp ábyrgð eigenda í USA bankageira mun 0,6% á ári bera merki um einhverja nýliðun og henni fylgir oft meira val og betri þjónusta.
Í þriggja aðila fámennisþjónustugeirum [geirar þar sem koma má regluverki og innri samkeppni stjórnenda um aðhald í rekstri samfara bættri þjónustu] hvernig nást fram árleg 1% gjaldþrot?
Facts og Mortgage are failing in Icelend.
Almennur kaupmáttur og almennar hátekjur og almenn eignamyndun er nauðsynleg í fámennis þjóðfélögum eða sjálfstæðum Seðlabanka efnahagslögsögum til tryggja samkeppni og virkni innflutnings geirans og innri tekna fjármálaþjónustugeirans.
Betra er að fjárfesta en skuldfestast er mín hagfræði. Byggja upp öflugan neytendamarkað og auka verðmæti útflutningstekna og leyfa þjónustu aðilum að bjarga sér sjálfir í kjölfarið er það sem mínir skattpeningar eiga að fara í.
Áreiðanlegir með veðhæfan rekstur fá alltaf lánað á öllum tímum, það skilyrði uppfylla ekki Ríkistjórnir Íslendinga í augum peningamanna. Erfit er hjálpa þeim sem hjálpar sér ekki sjálfur það vita lögfræðingar í skilnaðargeiranum best.
Júlíus Björnsson, 24.9.2009 kl. 14:53
Íslenskir ráðherrar hafa nú alltaf verið svagir fyrir Mikado.
Pooh-Bah er þeirra fyrirmynd.
Andri Geir Arinbjarnarson, 25.9.2009 kl. 17:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.